Hrefna :)
01.06.2006 23:44:56 / Hrefna

1. júní 2006...

Jæja, nú er komið að því... Ég ætla að flytja! Nei, ég er ekki að fara að flytja til Barcelona með nýja kærastanum mínum heldur ætla ég að flytja bloggið mitt... ;) Pínu leiðinlegt eftir allan þennan tíma, en það er bara ekki nógu vel hugsað um blog.central svæðið lengur, alltaf eitthvað bilerí í gangi og svona. Ég er búin að búa til nýja síðu og þó að hún sé ekki tilbúin, vantar alla linka og svona (og ég er sko allt of þreytt til að gera eitthvað í því núna...) þá finnst mér bara 1. júní 2006 svo smart dagur til að byrja þar...

Svo ég býð ykkur bara velkomin á hrefnakatrin.blog.is!


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.05.2006 23:50:39 / Hrefna

Lífið er dásamlegt!

Getið þið trúað því að ég sé í alvörunni búin með fjórða árið!?

 :haha:   :haha:   :haha:   :haha:

Prófið í dag var meira að segja ekkert svo hræðilegt, bara jafnvel pínulítið gaman stundum, svona þegar maður var kominn af stað... Ég fékk 1) Lost hjá slösuðum, orsakir og meðferð, 2) Whipples aðgerð og 3) Meðfædda luxation (liðhlaup) í mjöðm. Held að ég hafi bara getað sagt sæmilega frá þessu öllu. Svo fengum við bara kók og prins, það var tekin hópmynd og amen :haha: Það var eiginlega alveg ótrúlegt að vita að þetta væri búið, ég er búin að vera að átta mig á því svona í bitum í allan dag...

Svo fór ég með Lollu í Kringluna þar sem við ráfuðum brosandi um og vissum sjaldnast hvert við vorum að fara eða hvað við ætluðum að gera næst... ;) Ætluðum að skoða pæjudót en enduðum á að kaupa barnaföt og hvítvín... Góð blanda ;) Næst var það magadanspilsefnaleiðangur, svo bekkjargrill í Mosó og að lokum kóræfing í Meló. Nú er ég komin heim og búin að blaðra frá mér allt vit um allt og ekkert (aðallega ekkert...) og er barasta að hugsa um að fara að sofa.

Á morgun liggur svo leiðin í faðm fjalla blárra :haha:

Det er livet!


» 11 hafa sagt sína skoðun

31.05.2006 02:10:09 / Hrefna

Jæja...

Ætli ég læri nokkuð meira í bili... Svo er bara að massa restina af námsefninu til svona hálfþrjú á morgun og milli korter yfir þrjú og fjögur megið þið alveg senda mér góðar hugsanir... Þá verð ég inni hjá slátrurunum... 8|

Svo eftir fjögur verður það bara gleði gleði! :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 14:05:38 / Hrefna

Ohhh...

Ég er orðin svo löt og þreytt á þessum lestri öllum að mig langar helst að hætta bara að lesa og láta þetta svo bara ráðast á morgun... Geri mér samt alveg grein fyrir því að það er alveg einstaklega heimskulegt, sérstaklega vegna þess að ég á eftir að fara yfir ansi mikið efni... Ætla þess vegna að reyna að halda þessu áfram en vá, hvað ég nenni ekki meiru! :klikk:

» 6 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 11:24:47 / Hrefna

Vagga börnum og blómum

Já, ég hringdi á Bæjarskrifstofuna áðan. Var nebbla ekki nógu ánægð með úrslit kosninganna og ákvað að kvarta... Djók ;)

Við mamma fórum í gær að skoða nýja torgið okkar Kópavogsbúa (sem við munum ekki hvað heitir...) sem er yfir gjánni hjá Hamraborginni. Þar á miðju torginu er kringlótt plata sem grafið er í ljóðið Kópavogsbær (Vagga börnum og blómum) eftir Þorstein Valdimarsson. Þetta er frekar erfitt ljóð að læra (sérstaklega fyrir krakka af því að það er frekar mikið af skrýtnum orðum í því) en það máttum við í Skólakór Kársness nú samt gera og við sungum þetta við ýmis Kópavogstækifæri. Ég ákvað þess vegna að lesa yfir ljóðið, svona til að gá hvort ég myndi það ekki örugglega og svona í gríni til að gá hvort væri nokkuð prentvilla í því... Og hvað haldið þið? Það ER prentvilla í ljóðinu! Vantaði einn staf í næst síðustu línuna í síðasta erindinu þannig að hún varð skrýtnari en nokkuð annað í ljóðinu (þetta er annars alveg ágætisljóð, svona þegar maður er búinn að læra það...). Svo ég ákvað að hringja nú í morgun og athuga þetta, hvort væri kannski einhver annar búinn að láta vita um þetta (það eru held ég tvær vikur síðan torgið var formlega opnað), en nei, þau vissu ekki um þetta og voru held ég bara mjög fegin að vera látin vita svo þau geti lagað þetta. Nú er bara að labba uppeftir á hverjum degi til að gá hvað það taki langan tíma að breyta þessu! ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.05.2006 23:58:50 / Hrefna

Stemningin já...

Hún er nú bara nokkuð góð núna en hefur ekki verið það alla helgina...

Held að prófið á föstudaginn hafi nú bara gengið sæmilega, held að ég hafi a.m.k. ekki staðið mig neitt miklu verr en aðrir. Þetta var að minnsta kosti risastór áfangi að ná og ótrúlega merkilegt að vera bara búin með medicin...! Ég ætlaði að gera ýmislegt á föstudaginn eftir prófið en það varð nú eitthvað minna úr... Tókst nú samt að fara í Sunnuhlíð og sækja vaktaplanið mitt fram að EMSO ferðinni. Mæli með því að vera í 50% vinnu, maður er bara í fríi allt sumarið! :haha:  Um kvöldið var svo bara sjónvarpsgláp og ís, fannst ég alveg eiga það skilið :)

Á laugardagsmorguninn byrjaði svo ballið... Ætlaði að vera agalega dugleg að byrja snemma að lesa og mæta svo loksins á kóræfingu fram að hádegi, eftir að hafa skrópað á síðustu sex æfingum... En nei, mér var svo illt í hausnum að það var ekki um annað að ræða en að borða migrenitöflu og fara að sofa aftur og stefna á að mæta of seint á kóræfinguna, betra en ekkert... Það fór samt ekki heldur þannig því sagan endurtók sig þegar ég vaknaði næst, önnur migrenitafla og aftur að sofa (ekki það að ég hafi sofið neitt sérstaklega mikið)... Nú, ég hugsaði, jæja ég ætlaði hvort eð er að vera á kóræfingu til eitt svo að ég get alveg eins sofið þangað til, ég tapa engum lestrartíma við það. En nei, mér bara batnaði ekki í hausnum! Arg! :evil: Klukkan fjögur fannst mér vera komið alveg nóg af þessu og hringdi á Læknavaktina og var sagt að koma þangað svo að pabbi fór með mig þangað og við máttum bíða þar í góða stund, svona 10x lengur en það tók að"afgreiða mig" ;) - það var nebbla ekki seinlegt... Litli læknaneminn sem var nýbúinn í skriflegri medicin og á leiðinni í munnlega kirurgiu fékk mikla samúð og nóg af verkjalyfjum... Ég fékk samt ekki að borða nýju verkjalyfin mín alveg strax, það var ekki talið öruggt að hleypa mér á kjörstað í óráðinu... ;) Svo við byrjuðum á því, enda eins gott, ég hefði kannski getað lent í því að kjósa B! Maður veit aldrei! Nú, svo var það heim að borða verkjalyf og sofa og rétt fyrir klukkan tíu vaknaði ég (eins og læknirinn sagði, rétt fyrir fyrstu tölur... ;) ) og búmm! Batnað í hausnum :) Ég var mjög glöð og horfði smá á kosningavökuna yfir "kvöldmatnum" og svo aðeins lengur (ákvað að það tæki því kannski ekki að byrja að lesa svona seint). Fór svo að sofa og ætlaði að vakna ofurspræk í morgun og byrja að lesa, en hvað haldið þið? Jú, ég var aftur komin með hausverk... Eftir smá svefn í viðbót og meira lyfjaát, svo gönguferð út í búð að kaupa lakkrís, þá var ég bara orðin ljómandi góð upp úr þrjú! Og síðan þá er ég búin að vera að lesa almenna kírurgiu og já, gengur bara nokkuð vel :)

Hver þarf líka fjóra daga til að læra kirurgiu? Þrír eru feikinóg...!

Sumsé, fín stemning núna :D Og meira innbyrt af verkjalyfjum en nokkru sinni fyrr á tveimur dögum... :P

Og í fyrramálið ætla ég að hringja á bæjarskrifstofuna... Það verður áhugavert ;)

En núna er ég farin í draumalandið, góða nótt!


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 22:02:04 / Hrefna

Jaæja...

Hvernig ætli stemningin verði eftir um það bil 14 klst....

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 00:21:10 / Hrefna

Ástandið er orðið slæmt...

Sem betur fer er bara vika eftir þannig að það er vel líklegt að ofangreint ástand gangi til baka...! :$

EN...

Fróðleiksmoli dagsins er úr smitinu:

Það deyja 2 milljónir manna úr berklum árlega!


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 18:45:48 / Hrefna

Hressandi...

Fór út að labba áðan... í roki og snjókomu... Frekar skondið ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 18:11:14 / Hrefna

Tvö búin! ...en samt allt eftir...

Mér finnst hálfgert svindl að þó að ég sé búin með tvö próf og þar með hálfnuð með fjölda prófa, þá hef ég enn ekki lokið einu einasta fagi... Mig langar svo að fara að loka einhverjum bókum og möppum og klára eitthvað... Ég er semsagt núna búin með verklegt / munnlegt medicin próf og svo verklega kirurgiu prófið sem var í dag. Þá á ég eftir tvö próf, prófin sem virkilega þarf að lesa fyrir... Skriflega medicin prófið sem er næsta föstudag og svo munnlegu kirurgiuna sem er miðvikudaginn eftir það. Mikið lifandi skelfingar ósköp verður nú gaman þegar þetta verður búið! Voruð þið nokkuð búin að heyra það...? :$

Man ekki hvort ég ætlaði að segja e-ð skemmtilegt líka eða bara nöldra þetta um prófin...

Ég var annars í alveg ljómandi góðu skapi áðan, í gönguferð (gleymdi sko að taka "afrekaskrána mína" með í prófið, fáum ekki einkunn fyrr en við skilum henni... svo að ég þurfti að fara aftur upp á spítala og ákvað að ég ætti skilið að fá örlítið súrefni í leiðinni... ;) ) í góða veðrinu með Rajaton í eyrunum og hugsaði um sumarið og lét mig dreyma :haha: Hef sko annars ekki farið út síðan á miðvikudaginn... Er reyndar enn í alveg ágætu skapi, þó að ég sé núna komin inn og búin að prenta út kvölddagskrána (Öldrun: Óráð, byltur og heilabilun) og þyrfti að fara að byrja að lesa þetta...


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 22:32:22 / Hrefna

Mozart og gáfur

Þið munið það sem oft hefur verið sagt, að Mozart geri mann svo gáfaðan? Ég held að það geti alveg verið rétt, og þess vegna hef ég verið mjög dugleg að borða Mozart kúlur í lestrinum undanfarið. Svo dugleg að nú eru allar kúlurnar búnar... Veit ekki hvernig fer með afganginn af lestrinum, ætli ég læri nokkuð?

» 3 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 16:15:45 / Hrefna

Alveg er ótrúlegt...

...hvað maður getur verið tómur í hausnum! Var semsagt í fyrsta prófinu áðan, munnlegri og verklegri medicin... Ég veit alveg að ég kann helling, en einhvern vegin vill vitneskjan helst ekki koma sér út úr manni þegar einhver spyr... Ég er alltaf miklu gáfaðri þegar er verið að spyrja einhverja aðra! Held að þetta hafi nú samt alveg sloppið (þó svo að það hafi auðvitað sannast sem kírurg nokkur sagði: "Það er ekkert mál að reka ykkur á gat..." - ekki það að einhver hafi nokkurn tíma efast um það...) og það skemmtilega er jú auðvitað að eitt er hvert eitt svo að nú eru bara þrjú eftir!

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.05.2006 22:17:51 / Hrefna

Laugardagskvöld...

Ekki alveg jafn mikið stuð núna eins og fyrir tveimur vikum...

Hilsen úr nýrunum...


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.05.2006 15:11:23 / Hrefna

Var ég búin að segja ykkur...

...að magadansbúningarnir okkar eru komnir frá Tyrklandi! Það er meira að segja vika síðan :) Minn er fjólublár og gylltur :haha: Þeir eru ekkert smá flottir og það sem meira er, þeir passa meira að segja nokkurn veginn á okkur (annað en síðast...)! Bara smá lagfæringar sem þarf að gera á böndum og svoleiðis en það verður nú ekki mikið mál þegar tími gefst til...


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 13:24:20 / Hrefna

Blóðbað...

Fékk eitt ansi hressandi áðan, svona andlitsbað... Var í æðaaðgerð á hálsi... Það er ekkert endilega svo snyrtilegt ;)

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti